Síldarmannagötur á eigin vegum
Gakktu Síldarmannagötur á eigin vegum. Frábær gönguferð í samstarfi við Kynnisferðir. Göngufólki verður skutlað í Hvalfjörð þar sem gangan hefst og sótt í Skorradal að göngu lokinni.
Verð frá
5999 kr.
Erfiðleikastig
Miðlungs
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
Ferðaflokkur
Ganga á eigin vegum
Hvað er innifalið
Skutl með Kynnisferðum
Þú útvegar
Hlýjan, regnheldan fatnað, gönguskó og gott nesti.
Lengd ferðar
8 klst. & 30 mín
Upphafsstaður
BSÍ
Dagleg ganga
5 klst.
Athugið
Gangan er farin á eigin vegum og því ekki með leiðsögn. Kynnisferðir sjá um að skutla og sækja göngufólk í lok ferðar
- Skorradalur
- Þyrill
- Hvalfjordur
Göngur og útivist eru líklega ástsælasta þjóðarsport Íslendinga. Það ætti ekki að koma neinum á óvart í ljósi þess að Íslendingar eru umkringdir stórbrotinni náttúru þar sem óviðjafnanlegt útsýni og fjölbreytt náttúrufegurð ræður ríkjum.
Ein skemmtilegasta dagleið í nágrenni höfuðborgarsvæðisins er Síldarmannagötur. Gengið er um gamla þjóðleið frá botni Hvalfjarðar yfir í Skorradal og tekur gangan um fimm klukkustundir. Þetta er þægileg, vel stikuð og vörðuð leið sem telur 14 km og um 450 metra hækkun og er vel fær öllum sem treysta sér til að ganga svo lengi. Ekki þarf að vaða á leiðinni nema vatnavextir séu óvenjumiklir, oftast á að vera hægt að stikla yfir ár og læki. En þægindi eru ekki helsti kostur Síldarmannagatna heldur óviðjafnanlegt útsýnið yfir Skorradal og Skorradalsvatn til norðurs og glæsilegan Hvalfjörðinn til suðurs. Hér gengu menn á milli sveita til að sækja síld sem gekk í vöðum inn Hvalfjörðinn og svæðið er ríkt af þjóðsögum, ævintýrum og sögu fyrri alda.
Reimaðu bara á þig skóna, smyrðu nestið og við skutlum þér upp í Hvalfjörð og sækjum þig í Skorradal eftir gefandi dag á göngu. Einfaldara gerist það ekki.
Stundaðu útivist með Wappinu – fáðu leiðsögn um Síldarmannagötur
Smelltu á hlekkinn, sæktu smáforritið, finndu þína leið og gakktu af stað.
Barnaverð (12-15ára): 2999 ISK
Lágmarks aldur: 12
Innifalið:
- Rútumiði
- Aðgangur að Wi-Fi
Göngufólki verður skutlað í Hvalfjörð þar sem gangan hefst og sótt í Skorradal að göngu lokinni
Ekki innifalið:
Leiðsögn/fararstjórn
Almennur útbúnaður til ferðainnar og matur
Dagskrá
Göngufólki verður skutlað í Hvalfjörð þar sem gangan hefst og sótt í Skorradal að göngu lokinni
Brottför frá Skorradal er áætluð kl.15:00. Hver og einn ber ábyrgð á því að komast á leiðarenda innan þessa tímaramma.
- Gangan sjálf tekur u.þ.b 5 klst.
- Erfiðleikastig: Meðal
- Vegalengd: 14 km
- Hækkun: 450 m