Íslenskir Fjallaleiðsögumenn bjóða upp á úrval spennandi afþreyingarferða á Suðurlandi fyrir alla fjölskylduna. Í sumar verður hægt að fara í jöklagöngu á Sólheimajökli og í Skaftafelli, sigla á Kayak fyrir framan jökulsporð Sólheimajökuls eða þeysa á fjórhjólum um Sólheimasand og uppgötva leynda staði í fjöllunum undir Mýrdalsjökli.
Ferðir fyrir alla fjölskylduna frá 8 ára aldri.
Við bjóðum alla hjartanlega velkomna í bækistöðvar okkar við Mýrdalsjökul, Sólheimajökul eða Skaftafell. Kíktu í heimsókn og njóttu alls hins besta sem náttúra Ísland hefur upp á bjóða með okkur á sem skemmtilegastan og öruggastan hátt!