2-tíma Buggy Ævintýri
Verð frá
23799 kr.
Erfiðleikastig
Auðveld
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
Hvað er innifalið
Tveggja sæta buggy, leiðsögn fagmenntaðs leiðsögumanns, hlífðaralklæðnaður, hjálmur og lambhúshetta
Þú útvegar
Hlýjan fatnað og gönguskó
Lengd ferðar
2 klst
Upphafsstaður
Höfuðstöðvar Icelandic Mountain Guides undir Mýrdalsjökli (Ytri-Sólheimar, vegur 222), mæting 20 mín fyrir brottför.
Athugið
Aukagjald er tekið fyrir að vera einn / ein í bíl.
Búðu þig undir hressandi ferð í ævintýralegri og fjölbreyttri náttúrufegurð suðurlands.
Finndu loftið leika um andlitið þegar þú svífur áfram um svarta fjöru Sólheimasands, nýtur útsýnis til Dyrhólaeyjar og upp til Mýrdalsjökuls.
Buggy ferðin okkar er ógleymanleg ferð um svarta sanda, gil og grónar hlíðar. Ferðin blandar saman skemmtilegan akstur í lipru tæki og náttúruupplifun. Það eina sem þú þarft er gilt ökuskírteini.
Fyrir frekari upplýsingar, hópaverð og bókanir hafið samband með tölvupósti á [email protected]
Lágmarks aldur: 6