Gengið yfir Fimmvörðuháls - dagsferð
Verð frá
38990 kr.
Erfiðleikastig
Krefjandi
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
Hvað er innifalið
Leiðsögn, Skutl úr Þórsmörk til baka á Skóga
Þú útvegar
Hlýjan, regnheldan fatnað og gönguskó
Lengd ferðar
10 klst.
Upphafsstaður
Bílaplanið við Skógafoss
Athugið
Frekari upplýsingar á [email protected]
Gönguleiðin yfir Fimmvörðuháls frá Skógum yfir í Þórsmörk er ein af vinsælustu leiðum landsins. Leiðin liggur frá Skógafossi og upp með Skógánni þar sem við fáum að njóta þeirra fjölmörgu fossa sem hana prýða. Áfram er haldið upp í skarðið á milli jöklanna Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls þar sem við skoðum gígana Magna og Móða sem urðu til í gosinu 2010. Þar getum við athugað hvort við finnum ennþá einhvern varma frá hrauninu. Því næst höldum við niður í áttina að Þórsmörk og njótum útsýnis yfir hálendið og jöklana í kring. Þegar niður er komið tekur gróðurinn á móti okkur og við þræðum okkur í gengum birkiskóginn þar til komið er í Bása þar sem bíllinn sem fer með okkur aftur að Skógum bíður okkar.
Til að nota ferðagjöfina er valmöguleikinn Gift Card notaður í bókunarferlinu
Lágmarks aldur: 12 ára