Fjallafólk

Fjallafólk

Frábært tækifæri til að ganga á fjöll í leiðsögn fagmanna



Verð frá
23900 kr.

Erfiðleikastig
Hófleg

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5

Athugið
Frekari upplýsingar á [email protected]

Fjallafólk

Fjallafólk er gönguhópur á vegum Íslenskra Fjallaleiðsögumanna með það meginmarkmið að stunda fjallgöngur og útivist allt árið um kring. Dagskrá hópsins byggist á vikulegum kvöldæfingum og/eða kvöldgöngum ásamt mánaðarlegum göngum á meira krefjandi fjöll í dagsfæri við Reykjavík. Upphaflega var hópur Fjallafólks settur á laggirnar sem sjálfstætt framhald hinnar vinsælu fjallgöngudagskrár Toppaðu sem skilaði yfir eitt þúsund göngumönnum og -konum á öllum aldri á hæsta tind landsins Hvannadalshnúk (2.110 m).

Sú hefð hefur myndast að Fjallfólksfélögum býðst utanlandsferð og er þá gjarnan verið að prófa nýjar leiðir. Sumarið 2018 hélt hópur Fjallafólks til Dólomítana á Ítalíu og sumarið 2019 liggur leiðin í Pýreneafjöllin.

Eins og svo margir vita er hver fjallganga einstakt ferðalag sem skilur eftir sig fjölmörg minningabrot. Ef til vill lituðu aðstæður á einhvern hátt minningarnar; skin og skúrir, einstakt sólarlag eða stjörnum prýddur næturhiminn. Kannski var það einstök samvinna hópsins, áhugaverðar umræður við samferðamenn eða hvernig þú nýttir reynslu þína og þekkingu til að yfirstíga erfiðar veðuraðstæður. Til langs tíma litið er víst að þú munt yfirstíga fjölmargt sem þú hefðir áður litið á sem hindranir og auka færni þína á mörgum sviðum svo ekki sé talað um hið einstaka samband við náttúruna sem verður sífellt traustara eftir því sem ferðunum fjölgar.

Marga hryllir við tilhugsuninni um fjallgöngur í myrkri og kulda vetrarmánuðanna og vissulega er það meiri áskorun en fjallgöngur á hlýjum og björtum sumardegi. Þeir sem ganga reglulega á fjöll allt árið um kring vita að oftast er veðrið (aðstæðurnar) verst fyrir utan svefnherbergisgluggann ... en alls ekki svo slæmt þegar á hólminn er komið. Ef þú ert til í að bjóða vetrarmyrkri og rysjóttu veðri birginn áttu fullt erindi í Fjallafólk.

Dagskrá

Dagskrá Fjallafólks 2019

Dagskrá birt með fyrirvara um beytingar vegna veðurs og aðstæðna.

Dagsetning Fjall/Leið Verð
     
Desember    
4 Þrekæfing -
11 Þrekæfing -
18 Þrekæfing -
22 Grímannsfell Flokkur 0 (ókeypis)
25 Jólafrí -
     
Janúar    
8 Þrekæfing  
15 Þrekæfing  
19 Krýsuvíkurbjarg 1. flokkur
22 Þrekæfing  
29 Þrekæfing  
     
Febrúar    
5 Þrekæfing  
12 Þrekæfing  
16 Kjölur í Kjós 1. flokkur
19 Þrekæfing  
26 Þrekæfing  
     
Mars    
5 Esja upp að Steini  
12 Mosfell  
16 Þverfjallskambur í Skarðsheiði  2. flokkur
19 Blákollur, Svínahrauni  
26 Kerhólakambur  
     
Apríl    
2 Borgarfjall + Nátthagi  
6 Þríhyrningur - vetrarferð 2. flokkur
9 Stóri Meitill  
16 Fagradalsfjall  
23 Geirmundartindur - Akrafjall  
30 Langihryggur  
     
Maí    
7 Kvígindisfell  
14 Trönuhringur  
18 Hvannadalshnúkur / Norðurland 3. flokkur
21 Hátindur Esju  
28 Hengill norðan megin  
     
Júní    
4 Krýsuvíkur Mælifell  
8 Esjan endilöng 2. flokkur
11 Blákollur sunnan Hafnarfjalls  
18 Móskarðshnúkar  
25 Meradalshnúkar  
     
Júlí Sumarfrí  
     
Ágúst    
6 Hlíðar v. Stíflisdal  
13 Hafnarfjall  
17 Utanlandsferð / Varaplan helgi?  
20 Arnarfell við Þingvallavatn  
28 Hátindur og Jórutindur  
     
September    
3 Snókur og Snóksfjall  
10 Þyrirll í Hvalfirði  
14 Smjörkhnúkur Hítardal 2. flokkur
17 Múlasel  
24 Helgafell í Hafnarfirðir  
     
Október    
1 Reykjafell í Mosfellsbæ  
8 Skálafell  
12 Elliðatindar - Snæfellsnesi 2. flokkur
15 Úlfarsfell  
22 Helgafell í Mosfellsbæ  
29 Esja upp að Steini  
     
Nóvember    
5 Þrekæfing  
9 Hvalfell 1. flokkur
12 Þrekæfing  
19 Þrekæfing  
26 Þrekæfing  
     
Desember    
3 Þrekæfing  
10 Þrekæfing  
14 Óvissu-jólakökuferð Ókeypis ferð
17 Þrekæfing  
Janúar 2020    
7 Þrekæfing   
14 Þrekæfing   
21 Þrekæfing   
28 Þrekæfing   

Helstu upplýsingar

Markmið Fjallafólks

Fyrir utan það að stunda fjallgöngur og útivist allt árið um kring eru langtímamarkmið Fjallafólks meðal annars:

  • Að efla andlegt og líkamlegt heilbrigði með ástundun útivistar allt árið um kring
  • Að safna fjallstindum í fjallahring Reykjavíkur
  • Að safna fallegum fjallstindum
  • Að halda sér í líkamlegu ástandi til þess að geta notið þess að ganga á fjöll og koma brosandi heim.
  • Að stefna árlega, eða annað hvert ár á spennandi gönguferðir á erlendri grundu

Á ég erindi í Fjallafólk?

  • Já ef þú vilt stunda fjallgöngur og útivist undir faglegri leiðsögn allt árið um kring
  • Já, ef þú hefur áður gengið á fjöll einn eða með öðrum en þyrstir í meira.
  • Já ef þú vilt komast á fjöll og fyrnindi sem þú færir annars ekki á
  • Já ef þú vilt safna fallegum fjallstindum
  • Ef þú hefur verið einn að þvælast en langar hærra og lengra og kippir þér ekki upp við félagsskap skemmtilegra göngufélaga!
  • Já ef þú hefur áhuga á fjallgöngum og útivist en hefur látið ýmislegt aftra því að sinna áhugamálinu, eins og t.d. tíma og veður.

Nokkrar góðar ástæður fyrir þig til að ganga í raðir Fjallafólks

  • Útivist og fjallgöngur verða að lífstíl til framtíðar.
  • Heilsubætandi áhrif reglulegra fjallgangna eru óumdeilanleg.
  • Stemmningin við að ganga á fjöll í góðra vina hópi.
  • Fagleg leiðsögn þar sem öryggi þátttakenda er haft í hávegum.
  • Fámennur hópur og meiri sveigjanleiki í leiðarvali.
  • Til að sjá nýjar hliðar á veruleikanum.

Fríðindi Fjallafólks

Fyrir utan augljósan heilsufarslegan ávinning af reglulegum fjallgöngum standa þátttakendum í gönguhópum Fjallaleiðsögumanna margs konar fríðindi til boða:

  • Sérstök kynningar- og afsláttarkvöld
  • Afsláttur á námskeiðum Fjallaleiðsögumanna 
  • Jöklaganga í Skaftafelli eða á Sólheimajökli, boðsferð fyrir tvo.
  • Ferð utan dagskrár á Hvannadalshnjúk og/eða Hrútfjallstinda á sérkjörum (sama og flokkur 3)
  • 15.000 kr. Ferðaávísun sem gildir í allar staðfestar lengri ferðir Íslenskra Fjallaleiðsögumanna,nema sérferðir.

Skráning og verð

Þátttökugjald fyrir heilt ár 36.900 kr. en hálft ár 23.900. Hvert tímabil miðast út frá 1. næsta mánuð eftir skráningu.

Boðið er upp á 25% afslátt af árgjaldi fyrir hjón og sambúðarfólk. Semsagt 25% fyrir báða aðila eða fullt gjald fyrir einn og 50% afsláttur fyrir fjölskyldumeðlim. 
Til að fá hjónaafsláttinn þarf að hafa samband við [email protected] eða hringja í síma 522 4975.

Þegar gengið hefur verið frá skráningu hér á síðunni ert þú komin í hóp Fjallafólks. Rétt er að benda á að ýmis stéttarfélög hafa niðurgreitt þátttökugjöld sem þessi. Sjá meðal annars reglur um Varasjóð VR.

Laugardagsfjallgöngur

Greitt er séstaklega fyrir hverja laugardagsfjallgöngu og er verðið mismunandi eftir lengd og erfiðleika ferðarinnar. Alls eru fjallgöngurnar 11 á starfsárinu en greitt er við skráningu í hverja ferð fyrir sig. Verðflokkarnir eru eftirfarandi:

  • Fjall í flokki 1 = 6.900 kr.
  • Fjall í flokki 2 = 13.500 kr.
  • Fjall í flokki 3 = 25.900 kr.

(Sjá dagskrá fyrir fjölda ferða í hverjum flokki)

 

Innifalið í þátttökugjaldi/árgjaldi Fjallafólks:

Að minnsta kosti 44 þriðjudagsþrekæfingar miðað við fullt ár. Afsláttur á verði mánaðarlegra fjallgangna (a.m.k. 11 á fullu starfsári) Ýmis sérkjör (fríðindi)

Samskipti og undirbúningur:

Tölvupóstur með upplýsingum um fyrirhugaða þrekæfingu, dagsferð eða annað er sendur á félaga Fjallafólks fyrir sérhvern viðburð.

Skilmálar:

Öllum er heimil þátttaka í dagskrá Fjallafólks
Börn undir 16 ára aldri eru á ábyrgð foreldra sinna eða forráðamanna í öllum ferðum Fjallafólks.
Hin almenna regla er að börn yngri en 12 ára fá ekki að fara í ferðir á jöklana; Snæfellsjökul, Hvannadalshnúk, Tindfjallajökul og Eiríksjökul.
Að því gefnu að börn hafi mætt í alla dagskrárliði Fjallafólks og að höfðu samráði yfirleiðsögumanns Fjallafólks og foreldra verður hæfni barna 12-15 ára, til að ganga á jöklana, metin.
Frítt er fyrir börn (í fylgd foreldra) yngri en 12 ára í allar vikulegar kvöldæfingar.
12 – 15 ára börn fá helmings afslátt af verði forráðamanns.

Innifalið:

Leiðsögn, ýmis sérkjör, búnaður (broddar, axir, hjálmar, belti) og fræðsla
Vikulegar þrekæfingar/kvöldgöngur
Mánaðarlegar dagsgöngur á sérkjörum - sjá verðflokkana og dagskrá

Ekki innifalið:

Akstur til og frá áfangastað

Hafið í huga:

Alla jafna er lagt af stað frá bensínstöð N1 í Ártúnsbrekkunni, nema annað sé tekið fram í pósti. Farið er á eigin bílum að uppgöngustað en leitast við að sameinast í bíla eins og kostur er.

Fjallaleiðsögumenn ... örugglega á fjöllum

Nánar

Fjallgöngur og æfingar

Dagskrá Fjallafólks skiptist í vikulegar kvöldæfingar og mánaðarlegar fjallgöngur.

Vikulegar kvöldæfingar

Á vikulegum kvöldæfingum (Þriðjudags þrekæfingum) er lögð áhersla á þol- og styrktarþjálfun. Um tíu sinnum á sérhverju starfsári, gjarnan á vorin og haustin, er haldið á fjöll og fell í nágrenni Reykjavíkur. Vikulegar kvöldæfingar eru á þriðjudögum og hefjast ávallt kl. 18, nema annað sé sérstaklega tekið fram í tölvupósti til félaga. Á hefðbundinni þrekæfingu er byrjað með 15 mínútna strunsi (upphitun) en síðan framkvæmdar fjölbreyttar æfingar með áherslu á almennan líkamsstyrk þar sem nær engöngu er unnið með eigin líkamsþyngd. Kvöldæfingar yfir vetrartímann eru yfirleitt haldnar í Öskjuhlíð en einnig hefur hópurinn æft í Heiðmörk, í Elliðaárdal og í Kópavogi.

Mánaðarlegar fjallgöngur

Í mánaðarlegum fjallgöngum (a.m.k. 11 fjöll yfir árið) verður gengið á mörg falleg og krefjandi fjöll í dagsfæri við borgina (sjá hér að ofan undir flipanum „Dagskrá“ ). Sjö af þessum fjöllum eru í þægilegu dagsfæri við borgina (að hámarki 2:00 akstursfjarlægð), fjögur fjöll eru langar dagleiðir og a.m.k. ein í Öræfin þar sem reikna ætti með því að gista tvær nætur. Rétt er að undirstrika að í fjallgöngum Fjallafólks er markmiðið ekki að sigra klukkuna í viðureign við tindinn heldur að koma brosandi heim. Allur sperringur, sem þó er svo mikilvægur á þrekæfingunum ;-) er látin lönd og leið. Í fjallgöngum nýtur Fjallafólk þess hins vegar að vera í góðu formi eftir þriðjudagsþrekæfingar hópsins.

Öryggi og betri þjónusta

Í öllum fjallgöngum Fjallafólks eru að hámarki 16 þátttakendur á hvern leiðsögumann og færri þegar gengið er á jöklum. Hátt hlutfall leiðsögumanna eykur öryggi þátttakenda og tryggir um leið betri þjónustu. Lágt hlutfall á hvern leiðsögumann bíður einnig uppá möguleikann að hraðaskipta hópnum ef þörf krefur. Hámarksskráning í Fjallafólk er 50 manns.

Hvað þarf ég? Nauðsynlegur útbúnaður þátttakenda

Það er engin ástæða til að hlaupa út í búð og kaupa nýjasta útivistarfatnaðinn og -útbúnaðinn til að geta tekið þátt í ferðum Fjallagengisins. Þrekæfingar krefjast ekki annars en léttra göngu- eða íþróttaskóa og þægilegs klæðnaðar. Í mánaðarlegum kvöldgöngum þarf að klæða sig eftir veðri en í mánaðarlegum dagsgöngum á laugardögum er mikilvægt að meðfylgjandi lista sé fylgt: 

  • Fjallgönguskór (mjúkir eða millistífir) 
  • Hlýr og skjólgóður fatnaður (jakki og buxur)
  • Hlýr nærfatnaður (ull eða viðurkennd gerviefni en ekki bómull)
  • 25-35 lítra bakpoki
  • Hlý peysa
  • Húfa og vettlingar
  • Utanyfirvettlingar (við vetraraðstæður)
  • Góðir vatnsheldir gönguskór (mjúkir eða hálfstífir)
  • Legghlífar (eftir aðstæðum) GSM-sími
  • Ennisljós

Annað – öryggi og tryggingar:

IFLM áskilur sér rétt til þess að breyta út af fyrirhugaðri dagskrá ef öryggi þátttakenda þykir ógnað.
Allar fjallgöngur fela í sér áhættu.
Öryggi viðskiptavina í ferðum Fjallaleiðsögumanna er ávallt í fyrsta sæti og þess vegna leggja Fjallaleiðsögumenn mikla áherslu á hættumat og fyrirbyggjandi ráðstafanir í menntun leiðsögumanna sinna.
Þátttakendur eru á eigin ábyrgð í ferðum Fjallaleiðsögumanna.
Þátttakendum er bent á að leita sér upplýsinga um tryggingar hjá tryggingafélögum.
Hlutverk leiðsögufólks Fjallaleiðsögumanna er ekki að koma fólki á toppinn – heldur að allir komi heilir heim.

Bóka ferð

Skráning í mánaðarlegar helgargöngur

Currency Settings

Choose your currency

Please note that our currency exchange rate is taken from the Icelandic Central Bank and might differ slightly from your bank's currency rate. Additionally, all charges are made in Icelandic Krona (ISK).

Select currency:

Iceland Rovers - Search

Looking for something special?

Skráðu þig á póstlista Íslenskra Fjallaleiðsögumanna!

* verður að vera útfyllt

Hafa samband

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.