Fjórhjólaferð á Sólheimasandi

Mynd © Björgvin Hilmarsson

Fjórhjólaferð - Fjöll, fjara og flugvélarflak

Verð frá
23999 kr.

Erfiðleikastig
Auðveld

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5

Hvað er innifalið
Tveggja sæta fjórhjól, leiðsögn fagmenntaðs leiðsögumanns, hlífðaralklæðnaður, hjálmur og lambhúshetta

Þú útvegar
Hlýjan fatnað og gönguskó

Lengd ferðar
2 klst

Upphafsstaður
Höfuðstöðvar Arcanum undir Mýrdalsjökli (Ytri-Sólheimar, vegur 222), mæting 20 mín fyrir brottför.

Athugið
Gild ökuréttindi þarf til að aka fjórhjóli. Einstaklingar og oddatöluhópar þurfa að greiða fyrir staka ökumenn (e. single rider fee).

Ferðin hefst við bækistöðvar Arcanum undir Mýrdalsjökli (Mýrdalsjökull Base Camp) þar sem leiðsögumaður ferðarinnar tekur á móti ykkur. Allur nauðsynlegur búnaður er innifalinn í ferðinni og áður en lagt er af stað er farið yfir helstu öryggisatriði. Þegar allt er klárt er haldið af stað yfir Sólheimasand og niður í fjöru. Ekið er meðfram sjónum í stórbrotnu landslagi með útsýni yfir Dyrhólaey og Mýrdalsjökul í fjarska. Úr fjörunni er haldið aftur yfir Sólheimasand með viðkomu hjá hinu heimsfræga DC3 flugvélaflaki sem hefur legið á sandinum síðan 1973. Haldið er áfram yfir sandinn að Jökulsá og henni fylgt upp í fjalllendið í fallegu landslagi inn í falin gil þar sem gróðursældin kemur á óvart. Þaðan er ekið meðfram fjöllunum aftur á upphafsstað þar sem ferðinni líkur.

Þetta er ferð sem í tvinnar saman skemmtilegan akstur og fjölbreytt landslag. Góður dagur fyrir alla fjölskylduna!

Athugið: Gild ökuréttindi þarf til að aka fjórhjóli. Einstaklingar og oddatöluhópar þurfa að greiða fyrir staka ökumenn (e. single rider fee).

Fyrir frekari upplýsingar, hópaverð og bókanir hafið samband með tölvupósti á [email protected] 

Lágmarks aldur: 8

Bóka ferð

Currency Settings

Choose your currency

Please note that our currency exchange rate is taken from the Icelandic Central Bank and might differ slightly from your bank's currency rate. Additionally, all charges are made in Icelandic Krona (ISK).

Select currency:

Iceland Rovers - Search

Looking for something special?

Skráðu þig á póstlista Íslenskra Fjallaleiðsögumanna!

* verður að vera útfyllt

Hafa samband

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.