Snjósleðaferð á Mýrdalsjökli
Snjósleðaferð á Mýrdalsjökli - einstakt ævintýri!
Verð frá
33999 kr.
Erfiðleikastig
Auðveld, Hófleg
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
Lengd ferðar
3 klst.
Mæting að Ytri Sólheimum 1 hálftíma fyrir brottför. Þar erum við með allan útbúnað til vélsleðaferðarinnar, svo sem galla, hjálma. Þegar allir eru klárir er ekið á trukk upp Sólheimaheiði að Mýrdalsjökli þar sem vélsleðarnir eru staðsettir.
Í upphafi ferðar er farið yfir öryggisreglur, meðferð og notkun vélsleða, og öryggisreglur í umgengi um jökla. Það eru leiðbeinendur og fararstjórar með í ferðum hjá Arcanum sem stýra för og hugsa um að allt fari vel og fólk njóti sem best jöklaferðarinnar. Frá skálanum okkar í um það bil 800 metra hæð höldum við á jökulinn á vélsleðunum og stefnum á brún Kötlu-öskju.
Leiðin liggur upp meðfram Sólheimajökli sem er lengsti skriðjökull Mýrdalsjökuls og hefur tekið miklum breytingum síðustu ár. Í nærri 1400 metra hæð stoppum við og njótum stórfenglegs útsýnis yfir Suðurland ef veður leyfir og í norðri liggur svo við fætur okkar ein virkasta eldstöð landsins, Katla, hulin ís og snjó.
Á leið okkar niður jökulinn gefst okkur færi á útsýni austur yfir Mýrdal og Dyrhólaey blasir sjónum okkar ef verðurguðirnir eru okkur hliðhollir.
Lágmarks aldur: 8
Innifalið:
- Leiðsögn
- Vélsleði
- Snjógalli
- Hjálmur
- Lambhúshetta
- Vettlingar