Gönguhópur að nálgast topp Snæfellsjökuls

Gönguferð á Snæfellsjökul

Gakktu upp að innganginum að miðju jarðar

Mynd © Sigurður Bjarki Ólafsson

Gönguferð á Snæfellsjökul

Gakktu upp á topp Snæfellsjökuls í fylgd með reyndum fjallaleiðsögumanni.

Erfiðleikastig
Miðlungs

  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5

Hvað er innifalið
Leiðsögn og allur nauðsynlegur jöklabúnaður

Þú útvegar
Akstur að byrjunarstað, nesti og hlýr göngufatnaður

Lengd ferðar
7 klst.

Upphafsstaður
Arnarstapi Center

Hópastærð
6-30 þátttakendur

Snæfellsjökull er líklega næstfrægasta fjall landsins á eftir Eyjafjallajökli. Staðsetning þess, þar sem það rís 1446 m með sjó á þrjár hliðar gerir það einstakt.  Á góðum degi er útsýni frá Reykjanesi í suðri til Vestfjarða í norðri og inn til fjalla og jökla í austri. Gönguferð á Snæfellsjökul svíkur engan. 

Hópurinn hittist við Arnarstapa Center klukkan 10:30 þar sem farið verður í samfloti upp að jökulbrúninni. Við mælum því með að leggja ekki síðar af stað frá Reykjavík en kl 8:00 um morguninn. Þegar komið er inn á jökulinn verður gengið í línu upp að hinum einkennandi blómkáls-toppi Snæfellsjökuls. Búast má við því að gangan upp taki um 3-4 klukkustundir. Þegar upp á topp er komið virðum við fyrir okkur magnað útsýnið, fáum okkur nesti og njótum þess að standa á toppinum á þessu glæsilega sofandi eldfjalli.

Innifalið í verði er allur nauðsynlegur jöklabúnaður og ekki er þörf á neinni tæknilegri kunnáttu. Þátttakendur þurfa einungis að hafa úthald í hæfilega langan dag á fótum, eða um 6-7 klukkustundur.

Athugið að lágmarksfjöldi þátttakenda er 6 til að staðfesta brottför. 

Miðnæturferð á Sumarsólstöðum!

Þann 19. júní ætlum við bjóða upp á sérstaka miðnæturferð á Snæfellsjökul. 

Er til fegurri leið til að fagna sumarsólstöðum en að standa á miðnætti, böðuð miðnætursól, á þessum fallegasta tindi í fjallahring höfuðborgarinnar?

Ætlunin er að leggja af stað úr bænum kl 18 og hefja sjálfa gönguna um 9-leytið. Við gerum ráð fyrir að standa á toppi jökulsins á miðnætti og ganga svo niður drukkin af fegurð næturinnar og tilbúin að njóta íslenska sumarsins.

Eins og alltaf útvega Íslenskir fjallaleiðsögumenn allan nauðsynlegan jöklabúnað og því er nóg að taka með hlýjan göngufatnað (sjá búnaðarlista), gott nesti og enn betra skap.

Ef það viðrar ekki vel á göngudaginn höfum við dagana fyrir og eftir sem varadagsetningar. Nánar um það þegar veðurspáin liggur fyrir.

Ekki missa af þessari einstöku ferð sem verður bara í boði þennan dag!

Á toppi Snæfellsjökuls í miðnætursólinni

Lágmarks aldur: 16

Búnaðarlisti

Skyldubúnaður

  • Bakpoki 30-45L
  • Vatns og vindheldur öndunarfatnaður, buxur og jakki
  • Sterkir gönguskór (hægt að leigja af ÍFLM)
  • Legghlífar
  • Síðerma bolur úr ull eða gerviefnum
  • Göngubuxur eða fleece buxur
  • Ullarsokkar / göngusokkar
  • Góð sólgleraugu cat. 3-4
  • Sólarvörn / fyrir andlit og varir (SPF 30 eða meira)
  • Hlý peysa (ull eða fleece)
  • Auka peysa til að nota í pásum og á köldum dögum (eða léttur dún / fiber jakki
  • Húfa og vettlingar (þunna og þykka)
  • Nesti (2-6 samlokur og súkkulaði og annað nasl)
  • Vatn (allt að 3L, leitið ráða hjá leiðsögumanni fyrir ferð)
  • Myndavél
  • Göngustafi (stillanlega skíðastafi)

Snemma á vorin (apríl, maí) er nauðsynlegt að vera með hlýrri föt og ekki úr vegi að hafa einnig skíðagleraugu og vindeldar lúffur/vettlinga með í för.

Frekari upplýsingar:

Fatnaður:

Besta leiðin til að vera vel undirbúinn fyrir langar fjallgöngur er að klæða sig í lögum. Þannig er hægt að fara úr í miklum hita eða auka við fatnað eftir því sem ofar dregur og kólnar.

Það er mjög mikilvægt að klæðast fatnaði næst húðinni sem ekki dregur í sig raka. Ull og ýmis gervi efni eru mjög góð. Bómull er alger bannvara á fjöllum! Útivistarverslanir hafa mikið framboð af góðum innanundirfatnaði og geta gefið góð ráð um val á honum. Þunnir langerma bolir gefa besta vörn á sólar dögum!

Matur og drykkur:

Á meðan á fjallgöngunni stendur er stoppað nokkrum sinnum í lengri og skemmri tíma til að nærast og drekka. Mjög gott er að hafa nesti sem samanstendur af sælgæti, t.d. súkkulaði, sem borða má í stuttum pásum og samlokum sem gefa langtíma orku og borða má í lengri hléum.

Það er sjaldgæft að göngumenn nái ekki toppnum vegna þreytu. Þegar slíkt kemur fyrir er það venjulega vegna vöðvakrampa. Vöðvakrampar verða til vegna samblands áreynslu, vökva- og steinefnaskorts. Besta leiðin til að koma í veg fyrir krampa er að drekka mikið af vökva.

Hægt er að blanda ýmiskonar orkudrykkjum út í vatn til að bæta upp steinefna- og orkuskort. Best er að velja orkudrykki sem hafa mikið af steinefnum en ekki eingöngu kolvetni. Styrkur blöndunnar ætti að vera um ½ af því sem framleiðandi mælir með. Vatnið ætti að bera þannig að hægt sé að ná í það á göngu og ekki þurfi alltaf að taka af sér bakpokann til að drekka.

Góður kolvetnaríkur morgunmatur hjálpar til [múslí, brauð, o.þ.h.] og ekki er verra að drekka mikið áður en lagt er af stað. Kaffidrykkju ætti þó að stilla í hóf þar sem hún leiðir til frekara vökvataps.

Drekka, drekka,og drekka svo meira!

Bóka ferð

Ferðina er hægt að bóka fyrir einstaklinga og hópa, vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar.

Currency Settings

Choose your currency

Please note that our currency exchange rate is taken from the Icelandic Central Bank and might differ slightly from your bank's currency rate. Additionally, all charges are made in Icelandic Krona (ISK).

Select currency:

Iceland Rovers - Search

Looking for something special?

Skráðu þig á póstlista Íslenskra Fjallaleiðsögumanna!

* verður að vera útfyllt

Hafa samband

This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.