Öryggi í ferðum Fjallaleiðsögumanna
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa verið í fararbroddi hvað varðar öryggismál í íslenskri ferðaþjónustu. Í landi þar sem lög og reglugerðir hvað þetta varðar eru í lágmarki verða félög að setja sér eigin viðmið og stefnu. Stefna ÍFLM er að öryggismál fyrirtækisins séu í samræmi við bestu aðferðir hverju sinni. Þessi stefna sést m.a á fámennum hópum, menntun leiðsögumanna og okkar eigin starfsmannaþjálfun.
Helstu öryggisþættir í ferðum ÍFLM:
- Vönduð hópstjórn og öruggt leiðaval (mikilvægasti þátturinn).
- Trygg fjarskipti og öguð viðbrögð við óvæntum aðstæðum.
- Fyrsta hjálp og björgunaraðgerðir.
Vakinn - Gæða- og umhverfisvottun ferðaþjónustunnar
Árið 2015 urðu Íslenskir Fjallaleiðsögumenn fyrst fyrirtækja sem bjóða upp á bakpoka- og gönguferðir á Íslandi, til að hljóta gæða- og umhverfisvottun Vakans. Með vottuninni staðfestist að Íslenskir Fjallaleiðsögumenn sinna gæða- og umhverfismálum af fagmennsku og heiðarleika.
Hreint og Öruggt - Loforð til viðskiptavina
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn hafa innleitt verkferla og vinnubrögð sem uppfylla allar kröfur og skilyrði Ferðamálastofu um Hreina og Örugga ferðaþjónustu. Með þátttöku í verkefninu hafa Íslenskir Fjallaleiðsögumenn gefið viðskiptavinum sínum og starfsfólki, eftirfarandi loforð:
- Við fylgjum tilmælum yfirvalda og förum eftir gildandi sóttvarnareglum.
- Við leggjum mikla áherslu á þrif og sóttvarnir og förum eftir leiðbeiningum Landlæknisembættisins.
- Við þrífum sameiginlega snertifleti vel og reglulega og vöndum öll þrif.
- Við upplýsum og þjálfum starfsfólk reglulega um auknar áherslur á þrif og sóttvarnir.
- Við upplýsum og leiðbeinum viðskiptavinum um áherslur okkar á þrif og sóttvarnir.
- Við leggjum mikla áherslu á einstaklingsbundnar sóttvarnir; handþvott, notkun á handspritti, grímu og hönskum.
- Við hugum vel að nándarmörkum.
- Við notum snertilausar lausnir eins og kostur er.
- Við hvetjum viðskiptavini til að huga vel að persónulegu hreinlæti og sóttvörnum.